Sund er fyrir alla fjölskylduna

04.11.2021

ÍSÍ hefur í gegnum tíðina hvatt landsmenn til að huga að sinni daglegu hreyfingu í gegnum fjölbreytt verkefni sambandsins og nú er komið að landsátaki í sundi. Landsátakið, sem er skipulagt af Almenningsíþróttasviði ÍSÍ í samstarfi við Sundsamband Íslands (SSÍ), er framhald af Íþróttaviku Evrópu. Markmið Íþróttaviku Evrópu er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu um alla Evrópu og sporna þannig við auknu hreyfingarleysi meðal almennings,“ segir Lárus L. Blöndal, forseti ÍSÍ.

„Síðustu misseri hafa sýnt okkur með óyggjandi hætti að það skiptir gríðarlegu máli að vera vel á sig kominn, bæði líkamlega og andlega, og góð heilsa er ómetanleg. Það er margt sem við getum gert til að bæta og viðhalda líkama og sál og allt telur í pottinn,“ bendir Lárus á og bætir við að Íslendingar hafi alltaf verið duglegir að stunda sund.

„Við búum svo vel að hafa góðar sundlaugar víða um landið. Sund er fyrir alla, óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi. Það er tilvalin þjálfunaraðferð sem styrkir hjarta- og æðakerfið, lungu og vöðva líkamans en er einnig frábær og skemmtileg tómstundaiðja sem öll fjölskyldan getur stundað saman.“

ÍSÍ vonast til að landsmenn á öllum aldri taki þátt í átakinu, skelli sér í laugarnar í nóvember og skrái syntar vegalengdir á síðu átaksins, www.syndum.is.

Syndum okkur í gang fyrir veturinn!

Syndum til betra lífs
Til að taka þátt í sundátakinu þarf að skrá sig inn á syndum.is og fara í Mínar skráningar. Einfalt er að velja sér notendanafn og lykilorð og skrá sínar sundvegalengdir. Þeir sem eiga notendanafn í verkefninu Lífshlaupið eða Hjólað í vinnuna geta notað það til að skrá sig inn.

Syndum saman hringinn í kringum Ísland. Þeir metrar sem þú syndir safnast saman og á forsíðu syndum.is verður hægt að sjá hversu marga hringi landsmenn hafa synt.

Á heimasíðu syndum.is eru allar nánari upplýsingar um verkefnið auk ýmiss annars fróðleiks og upplýsingar um sundlaugar landsins. Þeir sem skrá sig og taka þátt geta átt möguleika á að verða dregnir út og vinna veglega vinninga.

Á myndinni eru Hildur Karen Aðalsteinsdóttir og Lárus L. Blöndal, forseti ÍSÍ, FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR

Grein frá Fréttablaðinu 4. nóvember 2021