Syndum - landsátak í sundi 1. - 30. nóvember

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands í samstarfi við Sundsamband Íslands stendur fyrir landsátaki í sundi frá 1. - 30. nóvember 2022. Syndum er heilsu- og hvatningarátak sem höfðar til allra landsmanna. Sund er fyrir alla óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi. Sund er tilvalin þjálfunaraðferð þar sem sund styrkir hjarta- og æðakerfið, lungu og vöðva líkamans. Sund er frábær hreyfing bæði til þess að hlúa að heilsunni og sem skemmtileg tómstundaiðja. Þetta átak er framhald af Íþróttaviku Evrópu sem tókst einkar vel í ár. Markmið Íþróttaviku Evrópu er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu um alla Evrópu og sporna þannig við auknu hreyfingarleysi meðal almennings.

Markmiðið með Syndum er að hvetja almenning til þess að hreyfa sig oftar og meira í sínu daglega lífi og nota meðal annars sund til þess. Munum eftir því hvað sund er frábært!

Til þess að taka þátt þarf að skrá sig inn með því að fara í Mínar skráningar. Einfalt er að velja sér notendanafn og lykilorð og byrja svo að skrá sínar sundvegalengdir. Þeir sem eiga notendanafn í Lífshlaupinu eða Hjólað í vinnuna geta notað það til að skrá sig inn.

Syndum saman hringinn í kringum Ísland. Þeir metrar sem þú syndir safnast saman og á forsíðunni hér verður hægt að sjá hversu marga hringi landsmenn hafa synt saman.

Hér er til hliðar er að finna ýmsan fróðleik sem og upplýsingum um allar sundlaugar landsins.

Þeir sem skrá sig og taka þátt geta átt von á að verða dregnir út og vinna veglega vinninga.

Hér má finna 10 frábærar ástæður fyrir því að þú ættir að synda eftir Guðmund Hafþórsson.