Landsmenn syntu 11,61 hring í kringum Ísland!

07.12.2021

Syndum, landsátak Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ) og Sundsambands Íslands (SSÍ) í sundi hófst með formlegum hætti 1. nóvember í Laugardalslaug og lauk sunnudaginn 28. nóvember síðast liðinn. Syndum var heilsu- og hvatningarátak sem höfðaði til allra landsmanna. Sund er fyrir alla óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi. Sund er heilsubætandi og góð leið til að styrkja hjarta- og æðakerfið, lungu og vöðva líkamans. Sund er jafnframt skemmtileg tómstundariðja. Þetta átak er framhald af Íþróttaviku Evrópu sem tókst einkar vel í ár. Markmið Íþróttaviku Evrópu er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu um alla Evrópu og sporna þannig við auknu hreyfingarleysi meðal almennings.

Markmiðið með Syndum var því að hvetja almenning til að hreyfa sig oftar og meira í sínu daglega lífi og nota meðal annars sund til þess. Til þess að taka þátt skráðu þátttakendur sig inn á www.syndum.is og skráðu þar inn þá metra sem þeir syntu.

Á tímabilinu voru alls 1.601 manns sem skráðu sundmetrana sína inn í heimasíðu átaksins en jafnframt vour 975 manns sem skáðu sundmetrana sína á þar til gerð skráningarblöð sem lágu í afgreiðslum flestra sundlauga landsins. Það voru því samtals 2.576 manns sem skráðu ferðir sínar á meðan á átakinu stóð. Alls voru syntir 15.354,9 km sem gera 11,61 hring í kringum landið. Inná Syndum.is.

Almenn ánægja var meðal þátttakenda með átakið og virðast margir hafa nýtt sér það sem hvatningu til að synda oftar og lengra og einnig til að bæta sundtækni sína. Tvisvar í viku voru fjórir þátttakendur dregnir út í lukkuleik og hlutu gjafabréf á Speedo sundfatnað, sundvörur og D-vítamín í boði H-verslunar. Aukaverðlaun voru dregin út 1. desember og fengu þá tveir heppnir þátttakendur snyrtivöru frá Taramar og árskort í sund frá ÍTR.

ÍSÍ þakkar öllum þeim sem tóku þátt og einnig starfsmönnum sundlauga sem héldu utan um skráningarblöðin og hvöttu sundgesti óspart áfram í átakinu.