Syndum - Landsátak í sundi var sett í Laugardalslauginni

31.10.2022

Syndum, landsátak í sundi hófst með formlegum hætti í Laugardalslaug í dag.

Andri Stefánsson, framkvæmdastjóri Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands og Björn Sigurðsson, formaður Sundsambands Íslands fluttu ávörp í dásamlegu veðri á bakka Laugardalslaugar. Andri hvatti alla til að nota sund sem sína daglegu hreyfingu, minnti á hvað sund er frábær hreyfing fyrir alla og hvað við Íslendingar erum heppin að eiga frábærar sundlaugar út um allt land.
Björn þakkaði ÍSÍ fyrir að standa fyrir þessu skemmtilega verkefni og benti á að sund væri ein vinsælasta almenningsíþrótt Íslendinga. Sundið færi vel með líkamann og við ættum að vera dugleg að nýta okkur allar frábæru sundlaugarnar úti um allt land. Góð sundlaug væri stolt bæjarfélagsins. Einnig ættum við aldeilis flott sundíþróttafólk þökk sé góðu aðgengi að sundlaugum.
Brynjólfur Björnsson sundþjálfari var á staðnum með sundgarpana sína sem syntu átakið af stað.

Allir geta tekið þátt í verkefninu með því að skrá sig inn á www.syndum.is og fara í „Mínar skráningar“. Einfalt er að velja sér notendanafn og lykilorð og skrá síðan hversu langt var synt. Þeir sem eiga notendanafn í Lífshlaupinu eða Hjólað í vinnuna geta notað það til að skrá sig inn. Þeir sem skrá sig og taka þátt geta átt von á að verða dregnir út og vinna veglega vinninga.

Á heimasíðu Syndum, www.syndum.is, eru allar nánari upplýsingar um verkefnið auk ýmiss annars fróðleiks og upplýsinga um sundlaugar landsins
Markmiðið með Syndum er að hvetja almenning til að hreyfa sig með því að synda saman hringinn í kringum Ísland. Landsmenn skrá sig og metrana sem þeir synda á forsíðu www.syndum.is. Þar verður einnig hægt að sjá hversu marga hringi landsmenn hafa synt og vinsælustu laugarnar.
Markmið átaksins í ár er að fá fleiri til að synda og synda meira.

Syndum saman!

Syndum er viðburður undir Íþróttaviku Evrópu