Syndum hefst í dag, 1. nóvember

31.10.2022

Syndum saman í kringum Ísland. Allir skráðir sundmetrar safnast saman og verða sýnilegir á heimasíðu Syndum
Þar verður einnig hægt að sjá hversu marga hringi landsmenn hafa synt í kringum Ísland. Á síðunni má jafnframt finna skemmtilegan fróðleik og upplýsingar um allar sundlaugar landsins..

Til þess að taka þátt þarf að skrá sig inn á www.syndum.is og fara í Mínar skráningar. Einfalt er að velja sér notendanafn og lykilorð og skrá synta metra. Þeir sem eiga notendanafn úr Lífshlaupinu eða Hjólað í vinnuna geta notað það til að skrá sig inn.
Þeir sem skrá sig og taka þátt eiga möguleika á að verða dregnir út og vinna frábæra vinninga