Skráningarleikur Syndum

02.11.2022

Á meðan heilsu- og hvatningarátakið Syndum stendur yfir verða nokkrir heppnir þátttakendur dregnir út í skráningarleiknum

Mánudagana 14, 21 og 28. nóvember, drögum við út skafkort af sundlaugum Íslands frá Skraf.
Miðvikudagana 9, 16, 23 og 30. nóvember drögum við út eitt gjafabréf frá H-verslun og alla föstudaga í nóvember drögum við út gjafapakka frá CRAFT í boði New Wave Iceland.
1. desember verða svo sex þátttakendur dregnir, tveir fá vörur frá Taramar, tveir árskort í sund frá ÍTR (gildir í sundlaugar í Reykjavík) og tveir fá árskort frá Akureyrarbæ (gildir í sundlaugar á Akureyri)

Vertu með það margborgar sig, líka í bættri heilsu.

Vinningshafar eru látnir vita samdægurs.á netfang eða með sms í símanúmer. Nöfn allra vinningshafa verða sett inn á heimasíðu Syndum undir Samstarfs og styrktaraðilar