Syndum 2026 er hafið
02.11.2026Syndum hófst 1. nóvember og stendur yfir allan nóvember.
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands - ÍSÍ í samstarfi við Sundsamband Íslands stendur fyrir landsátaki í sundi frá 1. - 30. nóvember 2026. Syndum er heilsu- og hvatningarátak sem höfðar til allra landsmanna.
1️⃣Sund er fyrir alla óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi.
2️⃣Sund er tilvalin þjálfunaraðferð fyrir hjarta- og æðakerfi, lungu og vöðva líkamans.
3️⃣Sund er bæði góð hreyfing og skemmtileg tómstundaiðja.
4️⃣Í sundi fær síminn frí.
Sjáumst í sundi í nóvember!
.jpg)