Skoðaðu Syndum vikumatseðilinn á Gott og einfalt
10.11.2026Syndum vikumatseðlinn er með einfaldar og góðar hugmyndir að hollum og næringaríkum hádegis- og kvöldmat.
Uppskriftirnar eru auðveldar og innkaupalistinn handhægur með hverri uppskrift. Gott og einfalt er samstarfsaðili ÍSÍ
Skoðið réttina á gottogeinfalt.is

Uppskriftirnar taka mið að opinberum ráðleggingum um mataræði sem standa á sterkum vísindalegum grunni. Faghópur skipaður fulltrúum frá embætti landlæknis, Reykjavíkurborg, Þróunarmiðstöð heilsugæslunnar, Reykjalundi og Menntaskólanum í Kópavogi veitir ráðgefandi faglegan stuðning tengt efnisvinnslu.
Markmið Gott og einfalt er að gera hollt mataræði aðlaðandi og aðgengilegt öllum þjóðfélagshópum. Skýr og einföld framsetning er til þess fallin að bæta heilsulæsi og auka heilsufarslegan jöfnuð. Auk uppskrifta inniheldur Gott og einfalt leiðbeiningar og fræðslu um eldamennsku, næringu, minni matarsóun og fleira.