3,3 hringir hafa verið syntir

25.11.2026

Það er alltaf gaman að rýna í tölfræðina og sjá hvað hún segir okkur.
Þegar syntir metrar eru teknir saman hafa þátttakendur synt 4.304,13 kílómetra, sem jafngildir um 3,3 hringjum í kringum Ísland.

Í kerfinu eru skráðir 236 þátttakendur, en sú tala segir þó aðeins hluta sögunnar. Fjölmargir taka þátt í tengslum við skólasund og æfingar sundfélaga auk almennings sem skráir synta metra á skráningarblöð í sundlaugum. Þeir metrar eru síðan teknir saman og skráðir sem ein heildartala í kerfið og birtast því undir einum skráðum aðila.

Raunverulegur fjöldi þeirra sem hafa lagt metra í púkkið er því töluvert meiri en skráningarkerfið gefur til kynna.

Það er sérstaklega gaman að sjá hversu mikið er synt í sundlaugum um allt land, ekki síst í minni laugunum þar sem margir metrar safnast saman.

Það er hægt að skrá sig allan tímann á þeðan átakið stendur hér